Afi Kiljans veitir verðlaun
„Það fer vel á því að afi Kiljans veiti þessi verðlaun,“ sagði Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur, þegar hæst dæmda kynbótahross ársins, Kiljan frá Steinnesi, fékk sérstaka viðurkenningu á Hrossarækt 2010. Bauð hann síðan Magnúsi Einarssyni í Kjarnholtum að stíga fram. Magnús er ræktandi stóðhestsins Kolfinns frá Kjarnholtum, sem er móðurafi Kiljans.
Kiljan fékk 8,71 í aðaleinkunn, sem er þó ekki hæsta einkunn ársins. Tvö hross fengu 8,72, þau Þóra frá Prestsbæ og Hraunar frá Efri-Rauðalæk. Þóra er hins vegar sjö vetra og Hraunar ellefu vetra. Kiljan er sex vetra. Í kynbótamatinu, BLUPP, er leiðrétt fyrir aldri, það er að segja, fjögra vetra hross fær fleiri stig í kynbótamati en fimm vetra hross með sömu einkunn, og svo framvegis. Leiðréttingin er minni við hvert aldursár. Sjö vetra hross og eldri frá enga leiðréttingu.
Aldursleiðrétt aðaleinkunn Kiljans er 8,78 og telst hann því hæst dæmda kynbótahross ársins. Hann fékk 8,33 fyrir sköpulag og 8,96 fyrir kosti. Hann er undan Kletti frá Hvammi og Kylju frá Steinnesi. Ræktandi er Magnús Jósefsson en eigendur eru Elías Árnason, Halldór Þorvaldsson og Ingolf Nordal. Knapi í sýningunni var Þorvaldur Árni Þorvaldsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári