Afkvæmahestar til verðlauna árið 2020

  • 7. maí 2021
  • Sjónvarp Fréttir

Hér fyrir ofan má sjá myndband þar sem Elsa Albertsdóttir ræktunarleiðtogi íslenska hestsins kynnir þá stóðhesta sem hlutu afkvæmaverðlaun á árinu 2020.

Alls voru þetta 6 hestar sem hlutu fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og 5 hestar sem hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Skaginn frá Skipaskaga var efstur hesta með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og hlaut Orrabikarinn á Landsýningu kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum 2020. Skýr frá Skálakoti stóð efstur heiðursverðlaunahesta á sömu sýningu og hlaut æðstu verðlaun sem stóðhestur getur hlotið í íslenskri hrossarækt, hinn eftirsótta Sleipnisbikar.

 

Vert er að taka fram að mismæli eru í myndbandinu og er það leiðrétt hér með að Óskasteinn frá Íbishóli sé vissulega undan Ósk frá Íbishóli en ekki Brún og beðist er velvirðingar á þessum mismælum.

Fréttin birtist fyrst á vef Félags hrossbænda.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar