Afkvæmasýningar stóðhesta á árinu 2010
Vegna frestunar landsmóts hestamanna hefur Fagráð í hrossarækt ákveðið eftirfarandi:
Ef áhugi stóðhestseigenda er fyrir hendi verður boðið uppá hefðbundnar afkvæmasýningar stóðhesta á viðburðunum sem áætlaðir eru um verslunarmannahelgina, Fákaflugi í Skagafirði og Hestafjöri 2010 á Gaddstaðaflötum.
Vegna undirbúnings er áríðandi að eigendur mögulegra hesta setji sig í samband við undirritaðan sem fyrst í síma 892-0619 eða [email protected].
Guðlaugur V. Antonsson
Hrossaræktarráðunautur BÍ.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH