Afkvæmi Gára eru glæsileg – video og myndir

  • 19. maí 2011
  • Fréttir
Afkvæmi Gára eru glæsileg - video og myndir

Þau voru hverju öðru fallegri, afkvæmi Gára frá Auðsholtshjáleigu, sem sýnd voru á Héraðssýningunni í Víðidal í gær. 

Flögri frá Sólvangi hlaut hæsta sköpulagsdóm sýningarinnar, 8,68. Þar af fékk hann einkunnina 9,5 fyrir fótagerð, einkunnina 9 fyrir háls,herðar og bóga og prúðleika. Hann fékk 7,92 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,23. Sýnandi var Bylgja Gauksdóttir.
 
Sigurður V. Matthíasson sýndi næst hæsta hest í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri, Lektor frá Ytra-Dalsgerði.  Hann er undan Gára og Gígju frá Ytra-Dalsgerði sem eru undan Kjarval frá Suðárkróki. Hlaut Lektor 8,42 í aðaleinkunn, 8,59 fyrir sköpulag og 8,31 fyrir hæfileika. 
 
Sóllilja frá Hárlaugsstöðum 2 er undan Gára og Sneglu frá Hala. Hún hlaut 8,13 í aðaleinkunn, 8,01 fyrir sköpulag og 8,20 fyrir hæfileika. Þá hlaut Plús frá Efri-Kvíhólma 8,22 fyrir sköpulag og 7,91 fyrir hæfileika. Sýndandi hans var Þórdís Erla Gunnarsdóttir.
 
Þessir fallegu rauðu gæðingar bera föður sínum gott vitni en Gári hefur nú hlotið tilskilin stig og afkvæmafjölda til að hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link