Afkvæmi Loka með hæstu meðaleinkunn fyrir fegurð í reið

  • 13. desember 2021
  • Fréttir

Loki frá Selfossi með eiganda sínum og ræktanda Ármanni Sverrissyni

Meðaleinkunnir afkvæma stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu

Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.

Eiðfaxi birti í fyrra lista yfir stóðhesta, með ákveðinn fjölda afkvæma, og hverjir af þeim væru að skila hæstu einkunnum fyrir ákveðna eiginleika í sköpulagi og hæfileikadómi. Eiðfaxi ætlar að gera það sama í ár og byrja á því að skoða meðaltal einkunna afkvæma sem komu til fullnaðardóms á árinu fyrir fegurð í reið

Alls eru 29 stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu.

Loki frá Selfossi er sá stóðhestur sem skilaði þeim afkvæmum sem hæsta einkunn hlutu fyrir fegurð í reið. Meðaleinkunn þeirra fyrir fegurð í reið er 8,53. Hann á alls 18 afkvæmi sýnd á árinu og meðalaldur þeirra er 6,8 ár.

Næstur honum er Hringur frá Gunnarsstöðum með 12 dæmd afkvæmi á árinu sem eru 4,8 vetra að meðaltali með meðaleinkunnina 8,42 fyrir fegurð í reið. Skýr frá Skálakoti er þriðji með 37 dæmd afkvæmi ár árinu sem eru 5,3 vetra að meðaltali en meðaleinkunn þeirra er 8,32 fyrir fegurð í reið.

 

Hér er listi yfir alla þá stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn fyrir fegurð í reið.

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Fegurð í reið
Loki frá Selfossi 18 6,8 8,53
Hringur frá Gunnarsstöðum 12 4,8 8,42
Skýr frá Skálakoti 37 5,3 8,32
Trymbill frá Stóra-Ási 16 5,9 8,31
Sjóður frá Kirkjubæ 20 6,3 8,30
Arion frá Eystra-Fróðholti 29 5,8 8,28
Hrannar frá Flugumýri II 30 5,6 8,25
Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 10 5,6 8,25
Hróður frá Refsstöðum 10 6,2 8,25
Jarl frá Árbæjarhjáleigu 13 6,5 8,23
Konsert frá Hofi 51 5,1 8,22
Herkúles frá Ragnheiðarstöðum 14 5,9 8,21
Skaginn frá Skipaskaga 10 4,9 8,20
Viti frá Kagaðarhóli 13 5,7 8,19
Óskasteinn frá Íbishóli 16 6,6 8,19
Hnokki frá Fellskoti 23 5,5 8,17
Ómur frá Kvistum 33 6,4 8,17
Álfasteinn frá Selfossi 15 7,1 8,17
Spuni frá Vesturkoti 37 6,8 8,16
Krákur frá Blesastöðum 1A 10 8,4 8,15
Hreyfill frá Vorsabæ 11 5,5 8,14
Draupnir frá Stuðlum 11 4,3 8,14
Kiljan frá Steinnesi 14 6,8 8,11
Eldur frá Torfunesi 11 6,3 8,09
Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 11 5,3 8,05
Ölnir frá Akranesi 34 5,4 8,03
Stáli frá Kjarri 35 6,7 8,01
Arður frá Brautarholti 10 6,6 7,95
Álfur frá Selfossi 27 7,2 7,94

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link