Afkvæmi Spuna með hæstu meðaleinkunn fyrir hæfileika í ár
Spuni frá Vesturkoti Mynd: Kolla Gr.
Í ár voru felldir 891 fullnaðardómar en alls komu 232 stóðhestar og 528 hryssur til fullnaðardóms á árinu. Alls standa 241 stóðhestur að baki sýndum hrossum á Íslandi. Fimmtán stóðhestar voru með 10 eða fleiri sýnd afkvæmi á árinu og er listi með þeim hér fyrir neðan.
Af afkvæmum þessara fimmtán stóðhesta eru afkvæmi Spuna frá Vesturkoti með hæstu meðaleinkunn fyrir hæfileika eða 8,18. Næst í röðinni er afkvæmi Draupnis frá Stuðlum með 8.12 og síðan afkvæmi Hrings frá Gunnarsstöðum með 8.10 í meðaleinkunn fyrir hæfileika.
Með hæsta meðaltalið fyrir hæfileika án skeiðs, 8,51, eru afkvæmi Hrings frá Gunnarsstöðum. Næst í röðinni eru afkvæmi Draupnis frá Stuðlum með 8,37 í meðaltal fyrir hæfileika án skeiðs og á eftir þeim eru afkvæmi Vita frá Kagaðarhóli með 8,36 í meðaltal fyrir hæfileika án skeiðs.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þá fimmtán feður sem áttu flest sýnd afkvæmi á Íslandi árið 2023
|
Fjöldi |
Meðal- |
S. |
H. |
Ae. |
H. án |
Ae. án |
|
| Spuni frá Vesturkoti |
21 |
6.0 |
8.19 |
8.18 |
8.19 |
8.20 |
8.20 |
| Draupnir frá Stuðlum |
18 |
5.7 |
8.31 |
8.12 |
8.19 |
8.37 |
8.35 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum |
15 |
5.9 |
8.26 |
8.10 |
8.16 |
8.51 |
8.43 |
| Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum |
16 |
5.1 |
8.24 |
8.09 |
8.14 |
8.26 |
8.26 |
| Skýr frá Skálakoti |
37 |
5.8 |
8.32 |
8.07 |
8.16 |
8.26 |
8.28 |
| Konsert frá Hofi |
23 |
6.3 |
8.30 |
8.07 |
8.15 |
8.19 |
8.23 |
| Ölnir frá Akranesi |
13 |
6.1 |
8.31 |
8.05 |
8.14 |
8.26 |
8.27 |
| Trymbill frá Sóra-Ási |
10 |
5.3 |
8.25 |
8.05 |
8.13 |
8.21 |
8.23 |
| Hrannar frá Flugumýri |
17 |
6.2 |
8.11 |
8.04 |
8.07 |
8.26 |
8.21 |
| Óskasteinn frá Íbishóli |
15 |
7.4 |
8.06 |
7.99 |
8.02 |
8.14 |
8.11 |
| Viti frá Kagaðarhóli |
15 |
5.9 |
8.24 |
7.98 |
8.07 |
8.36 |
8.32 |
| Þráinn frá Flagbjarnarholti |
11 |
4.7 |
8.33 |
7.98 |
8.10 |
8.20 |
8.25 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti |
14 |
6.1 |
8.05 |
7.96 |
7.99 |
8.18 |
8.14 |
| Skaginn frá Skipaskaga |
18 |
5.6 |
8.25 |
7.94 |
8.05 |
7.97 |
8.07 |
| Hreyfill frá Vorsabæ |
10 |
6.1 |
8.14 |
7.80 |
7.92 |
8.18 |
8.16 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH