Afkvæmi Þráins með hæsta meðaltalið fyrir sköpulag í ár

  • 29. desember 2023
  • Fréttir

Þráinn frá Flagbjarnarholti Mynd: Kolla Gr.

Alls standa 241 stóðhestur að baki sýndum hrossum á Íslandi árið 2023

Í ár voru felldir 891 fullnaðardómar en alls komu 232 stóðhestar og 528 hryssur til fullnaðardóms á árinu. Alls standa 241 stóðhestur að baki sýndum hrossum á Íslandi. Fimmtán stóðhestar voru með 10 eða fleiri sýnd afkvæmi á árinu og er listi með þeim hér fyrir neðan.

Af afkvæmum þessara fimmtán stóðhesta eru afkvæmi Þráins frá Flagbjarnarholti með hæsta meðaltalið fyrir sköpulag eða 8,33 en þau eru einnig með lægsta meðaltalið ef litið er til aldurs sem er 4,7 ár. Afkvæmi Skýs eru næst í röðinni með 8,32 í meðaltal fyrir sköpulag og síðan eru það afkvæmi Draupnis frá Stuðlum og Ölnis frá Akranesi með 8,31 í meðaltal fyrir sköpulag.

Fjöldi
afkvæma

Meðal-
aldur

S.

Ae.

Ae. án
skeiðs

Þráinn frá Flagbjarnarholti

11

4.7

8.33

8.10

8.25

Skýr frá Skálakoti

37

5.8

8.32

8.16

8.28

Draupnir frá Stuðlum

18

5.7

8.31

8.19

8.35

Ölnir frá Akranesi

13

6.1

8.31

8.14

8.27

Konsert frá Hofi

23

6.3

8.30

8.15

8.23

Hringur frá Gunnarsstöðum

15

5.9

8.26

8.16

8.43

Skaginn frá Skipaskaga

18

5.6

8.25

8.05

8.07

Trymbill frá Sóra-Ási

10

5.3

8.25

8.13

8.23

Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum

16

5.1

8.24

8.14

8.26

Viti frá Kagaðarhóli

15

5.9

8.24

8.07

8.32

Spuni frá Vesturkoti

21

6.0

8.19

8.19

8.20

Hreyfill frá Vorsabæ

10

6.1

8.14

7.92

8.16

Hrannar frá Flugumýri

17

6.2

8.11

8.07

8.21

Óskasteinn frá Íbishóli

15

7.4

8.06

8.02

8.11

Arion frá Eystra-Fróðholti

14

6.1

8.05

7.99

8.14

 

Skýr með flest sýnd afkvæmi á árinu

Afkvæmi Draupnis og Spuna með hæsta meðaltal aðaleinkunnar í ár

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link