Afmælishátíð FT frestað
Stjórn og afmælisnefnd Félags Tamningamanna hefur ákveðið að fresta afmælishátíð félagsins sem fyrirhugað var að halda þann 11.september 2010. Áætlað er að halda hátíðina í lok janúar 2011.
Mikill metnaður er fyrir hendi að gera afmæli félagsins góð skil en vegna ástandsins í hestamennskunni á Íslandi var ákveðið að fresta hátíðinni og gefa hestum og knöpum lengri tíma til þess að jafna sig.
Afmælishátíð félagsins verður væntanlega haldin í lok janúar í reiðhöllinni í Víðidal og þar verður boðið uppá stórglæsilega kennslusýningu fremstu reiðkennara og knapa Íslandshestamennskunnar.
Með bestu kveðjum,
Stjórn Félags Tamningamanna.
A landsliðshópur Íslands