Afmælishátíð Hrossaræktarsambands Skagfirðinga
Fjórir heiðraðir fyrir störf í þágu hrossaræktar í Skagafirði…
Afmælishátíð Hrossaræktarsambands Skagfirðinga var haldin í Melgsgili. En á þeim stað fyrir 40 árum var sambandið stofnað. Húsið var troðfullt af fólki og borðin svignuðu undan veisluföngum. Ingimar Ingimarsson formaður HSS flutti skemmtilega og fróðlega samantekt úr sögu félagsins frá fyrstu 15 starfsárum þess. Honum til aðstoðar var Ólafur Sigurgeirsson sem las beinar tilvitnanir úr fundargerðarbókum. Meðal þess sem fram kom var að árið 1985 átti sambandið að fullu eða að hluta 13 stóðhesta og þar á meðal helstu máttarstólpa á bak við ræktunina í dag s.s. Hrafn, Hervar og Sörla. Að lokinni þessari yfirferð voru veittar viðurkenningar fjórum mönnum sem allir höfuð leikið stórt hlutverk í því að byggja upp Skagfirska hrossarækt. Það voru þeir:
Einar Gíslason sem var framkvæmdarstjóri og formaður HSS til fleiri ára.
Egill Bjarnason, sem kom mikið að starfsemi HSS bæði sem ráðunautur og framkvæmdarstjóri sambandsins.
Friðrik Stefánsson sem var formaður HSS til fjölda ára.
Sveinn Guðmundsson sem var varaformaður og stjórnarmaður í HSS um langt skeið.
www.horse.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári