Afmælishátíð Létts

  • 17. júní 2013
  • Fréttir
Afmælishátíð Létts

Nú á 85 ára afmælisári Léttis verður mikið um að vera. Við erum byrjuð með mótaröð sem nefnist afmælismót Léttis, keppt var í tölti 13. júní síðastliðinn og tókst það kvöld mjög vel. Framundan er 100m og gæðingaskeið þann 25. júní og fjórgangur 27. júní. Við ætlum að enda þessa mótaröð á fimmgangi 4. júlí.

Á þessum mótum ætlum við að rifja upp sögu félagsins á milli atriða og í pásum. Í töltkeppninni var farið yfir stofnendur Léttis, formenn, heiðursfélaga og gull/silfurmerkishafa. En hluta sögunnar og lista yfir formenn, heiðursfélaga og merkishafa er hægt að finna á www.lettir.is.
18-23 júlí veður haldið Íslandsmót yngri flokka og er allt á fullu við undirbúninginn á því og hlakkar okkur mikið til að fá í heimsókn til okkar framtíðarknapa landsins og eigum við von á hörku keppni. Léttikrakkarnir eru allir að æfa á fullu og munu keppa á afmælismótunum sem eftir eru. Skáning er hafin á Íslandsmótið í sportfeng og er tilvalið að skrá á mótið áður en ferðalögin hefjast.
Á Akureyrarvöku í lok ágúst ætlar Léttir að vera sýnilegur og taka þátt í menningarviðburðum á vegum bæjarins.
Hestamannafélagið Léttir var stofnað 5. nóvember 1928 og munum við því halda veglega uppskeru og afmælishátíð í kringum þá dagssetningu. Þar munum við halda áfram með upprifjunina og sýna gamlar myndir ásamt fleiru skemmtilegu og er undirbúningur fyrir hátíðina hafinn.
Við óskum Léttisfélögum öllum ásamt öðrum hestamönnum gleði og gæfu í sumar og hlakkar okkur til að sjá ykkur á þeim viðburðum sem við munum standa fyrir á árinu.
Myndina tók Ólafur Ólafsson af kátum A úrslita hestum og knöpum í töltkeppninni í Afmælis-mótaröðinni.“ segir í tilkynningu frá Stjórn Léttis

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link