Áfram heldur Íslandsmót
Kristófer Darri Sigurðsson er Íslandsmeistari unglinga í slaktaumatölti með 7,17 í einkunn. Hryssa Kristórfers er Brúney frá Grafarkoti. Í öðru sæti varð Glódís Líf Gunnarsdóttir og Magni frá Spágilsstöðum með 7,12 í einkunn. Elín Þórdís varð þriðja með 7,08 í einkunn.
Einnig voru verðlaun veitt fyrir stigahæsta unglinga mótsins en það var Védís Huld Sigurðardóttir og tók hún við verðlaunum því til handa.
Íslandsmeistari í slaktaumatölti ungmenna er Hákon Dan Ólafsson og Stirnir frá Skriðu. Þeir eru einnig íslandsmeistarar í fjórgangi ungmenna og eru því að eiga mjög árangursríkan dag hér á Íslandsmótinu. Einkunn þeirra í slaktaumatöltinu var glæsileg 7,58.
Unglingaflokkur
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Kristófer Darri Sigurðsson / Brúney frá Grafarkoti 7,17
2 Glódís Líf Gunnarsdóttir / Magni frá Spágilsstöðum 7,12
3 Elín Þórdís Pálsdóttir / Ópera frá Austurkoti 7,08
4 Arnar Máni Sigurjónsson / Sómi frá Kálfsstöðum 6,96
5 Védís Huld Sigurðardóttir / Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum 6,92
6 Katla Sif Snorradóttir / Eldey frá Hafnarfirði 6,79
Ungmennaflokkur
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Hákon Dan Ólafsson Stirnir frá Skriðu 7,58
2 Thelma Dögg Tómasdóttir Bósi frá Húsavík 6,79
3 Ólöf Helga Hilmarsdóttir Katla frá Mörk 6,54
4 Ásdís Ósk Elvarsdóttir Vísa frá Hrísdal 6,50
5-6 Benjamín Sandur Ingólfsson Ögri frá Fróni 6,38
5-6 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Prins frá Skúfslæk 6,38
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH