Áfram á sigurbraut
Áfram heldur Árni Björn á sigurbraut, en hann stóð uppi sem sigurvegari í slakataumskeppni kvöldsins í Meistaradeildinni. Árni og Skíma frá Kvistum komu efst inn í úrslit og héldu sínu. Eins og síðast var það Jakob Sigurðsson sem varð annar en hann kom sjötti inn í úrslit.
Keppnin var nokkuð jöfn og spennandi en þó var ljóst að fair hestar í kvöld hafa verið þjálfaðir með þessa keppnisgrein fyrst og fremst í huga.
Úrslitin voru sem hér segir:
1. Árni Björn Pálsson / Skíma frá Kvistum 8.00
2. Jakob Svavar Sigurðsson / Gloría frá Skúfslæk 7.83
3. Bergur Jónsson / Katla frá Ketilsstöðum 7.71
4. Hinrik Bragason / Pistill frá Litlu-Brekku 7.54
5. Ísólfur Líndal Þórisson / Gulltoppur frá Þjóðólfshaga 7.17
6. Sigurbjörn Bárðarson / Spói frá Litlu-Brekku 6.38
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH