Aganefnd úrskurðar að allur árangur af Metamóti sé ógildur
Efstu hestar í A-flokki Metamóts Spretts. Mynd: Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir
Niðurstaða aganefndar um Metamót og skráningu í 150 og 250 m. skeið á sama móti
Í kjölfar erindis sem stjórn LH sendi til aganefndar LH, 11. nóvember sl. vegna framkvæmda skeiðkappreiða á tveimur mótum síðastliðið sumar, hefur aganefnd komist að eftirfarandi niðurstöðu:
- Fella skuli út allan árangur á Metamóti Spretts sem haldið var dagana 4. til 6. september 2020 úr Sportfeng. Er það gert í ljósi þess að mótsskýrsla sem liggur fyrir af Metamóti er ekki í lögmætu formi og beinlínis röng og nýrri leiðréttri skýrslu hafi ekki verið skilað inn þrátt fyrir áskorun þar um. Mótið teljist því ekki hafa verið löglegt og allur árangur á því felldur út.
- Sigurbjörn Bárðarson hafi brotið gegn ákvæðum 4. töluliðar a) og b) 9. viðauka laga og reglna LH í keppni á Metamóti Spretts 2020 með skráningu í P1 og P3 á sama hesti á sama móti. Þar sem aganefnd hefur úrskurðað um að allur árangur á viðkomandi móti verði felldur út, kemur ekki til þess að fella þurfi sérstaklega út árangur Sigurbjörns á mótinu.
- Frederica Fagerlund hafi brotið gegn ákvæðum 4. töluliðar a) og b) 9. viðauka laga og reglna LH í keppni á Skeiðleikum 2 sem haldnir voru 10. júní 2020, með skráningu í P1 og P3 á sama hesti á sama móti. Árangur hennar í P1 og P3 á mótinu skal felldur úr gildi.
Er það niðurstaða aganefndar að ekki sé ástæða til að beita agaviðurlögum í málunum svo sem keppnisbanni eða áminningum.
Þakkar stjórn LH þeim nefndum LH sem fjölluðu um málið fyrir vel unnin störf.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH