Áhersla á góða og snyrtilega reiðmennsku
Íslandsmót fullorðinna hófst nú í kvöld með knapafundi. Knapar fjölmenntu á fundinn og greinilega góð stemming í hópnum. Boðið var upp á súpu og brauð og farið aðeins yfir málin. Sigríður Björnsdóttir dýrlæknir fór stuttlega yfir heilbrigðisskoðun á keppnishrossunum og Elisabeth Jansen fór yfir keppnisreglur.
- Klár í keppni, heilbrigðisskoðunin, verður á þessu móti líkt og á Landsmótinu. Skoðunin fer fram 1 – 24 tímum fyrir keppnina en hún mun fara fram á gamla vellinum.
- Fulltrúi knapa er Edda Rún Ragnarsdóttir og geta knapar leitað til þeirra ef koma upp einhver álita mál.
- Knapar minntir á að vera vel vakandi svo að mótið gangi vel.
- Þar sem þetta er ár reiðmennskunnar verður lagt mikil áhersla á góða reiðmennsku og gott samspil á milli manns og hests. + og – spjöldin verða notuð.
- Þeir sem vilja vera með ákveðin lög meðan þeir eru í braut eru beðnir um að hafa samband við Friðrik í síma 8991019
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH