„Áhersla á knapann, líkamsvitund hans og hugarfar“
Myndir sem fylgja viðtalinu eru eftir Kolbrúnu Grétarsdóttur
Nú í haust kom út á sænsku bókin „Islandshestryttaren – bli en drömmeryttare for din hast“ eftir þær Stinu Helmersson, sem er sænsk blaðakona sem hefur áður skrifað bækur um íslenska hestinn og Súsönnu Sand Ólafsdóttur reiðkennara, tamningakonu, íþrótta- og gæðingadómara. Að bókinni komu einnig þau Kolbrún Grétarsdóttir ljósmyndari, Gerd Hausman dýralæknir, Heiðrún Halldórsdóttir sem er sérmenntaður pílateskennari fyrir knapa, Ásta Björk Friðjónsdóttir og Haffi Gíslason tjá Töltriding sem tóku upp sýnikennslur.
„Efnistök eru fjölbreytt um reiðmennskuna með áherslu á knapann og líkamsvitund hans og hugarfar“ Segir Súsanna og heldur áfram „í bókinni reynum við að fá knapan til þess að gera sér grein fyrir sínum styrkleikum og veikleikum og taka ábyrgð á því í staðinn fyrir það að kenna hestinum um það sem miður fer. Við einblínum á það hvernig knapinn getur með réttum ábendingum og eigin líkamsbeitingu haft jákvæð áhrif á það hvernig hesturinn beitir sér.“
En hvernig tilfinning er það að nú sé kominn út bók eftir þig? „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt ferli og mikil vinna í kringum það. En ég viðurkenni að ég varð svo allt í einu smá feimin þegar bókin var komin út. En ég lagði upp með það að bókin væri ekki þung lesning heldur væri auðvelt að lesa í henni og glugga í til þess að leita sér hjálpar. Svo er í bókinni kóðar þar sem hægt er að fara inn á ýmsar sýnikennslur sem skýra betur og það bíðureinnig upp á möguleikann að halda bókinni lifandi með því að setja inn fleiri sýnikennslu.“
Geta íslenskir hestunnendur átt von á því að nálgast bókina í framtíðinni á íslensku? „Já, stefnan er að hún komi út á íslensku í vor.“ Við þökkum Súsönnu fyrir spjallið og óskum henni til hamingju með útgáfuna á bókinni og hlökkum til að lesa hana á íslensku á vormánuðum en þeir sem eru fróðleiksþyrstir og langar að ná sér í einstak á sænsku þá má nálgast hana í versluninni Ástund og á nyttorp.com
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH