Áhrif sköpulags og skeiðgens
Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur/ábyrgðarmaður hrossaræktar hjá RML flytur erindið „Ganghæfni íslenskra hrossa – áhrif sköpulags og skeiðgens“ í Funaborg á Melgerðismelum miðvikudaginn 11. mars kl. 20.
Erindið snýst um samband byggingar og hæfileika íslenskra hrossa og áhrif skeiðgensins á ganglag hestsins.
Fundurinn er öllum opinn og hestamenn hvattir til að fjölmenna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn hrossaræktarfélagsins Náttfara.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH