Áhrif þyngdar á hest
Vikuna 2. -6. júní 2014 var sett upp rannsókn á Hólum til að mæla áhrif af mismiklum knapaþunga á hjartslátt hesta, mjólkursýrumyndun í blóði og hreyfingar á tölti.
Notaðir voru 9 fullorðnir reiðhestar (5 geldingar og 4 hryssur) og einn knapi og síðan bætt við viðbótarþunga (blýi í hnakkinn, undirdýnu, þungum ístöðum og vesti á knapa) til að fá áhrifin af mismunandi knapaþunga.
Aðeins einn knapi var notaður til að koma í veg fyrir áhrif af mismunandi reiðlagi ólíkra knapa. Hlutfall þunga knapa af þunga hests var reiknað og prófuð voru hlutföllin 20%, 25%, 30% og 35%. Meðalþungi hestanna var 366 kg og meðalþungi knapa, reiðtygja og viðbótarþunga var 73, 91, 110 og 128 kg fyrir þau hlutföll sem voru prófuð.
Hestarnir voru settir í sama þjálfunarpróf með öll þungahlutföllin en þeim var riðið 600 m á tölti á hringvelli, á hraðanum um 5 m/s með hvern þunga (ca. 2 mín). Hjartsláttur var mældur allan tímann og blóðsýni tekið eftir hvert þjálfunarpróf. Auk þess voru hestarnir með nema til að mæla hreyfingarmynstrið á töltinu og öll þjálfunarprófin voru tekin upp á myndband. Líkamlegt heilbrigði hestanna var metið fyrir rannsóknina og í tvo daga eftir hana. Áður en rannsóknin hófst fékkst leyfi fyrir henni hjá tilraunadýranefnd.
Rannsóknin er hluti af doktorsnámi Guðrúnar Stefánsdóttur í þjálfunarlífeðlisfræði íslenskra hesta en gögnin úr hreyfingarfræðihlutanum mun Víkingur Gunnarsson nýta í sínu endurmenntunarnámi, en hann mun verða í endurmenntunarleyfi í Uppsala í Svíþjóð frá ágúst 2014 til júní 2015. Tveir sérfræðingar komu frá sænska landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð til að leiðbeina við og taka þátt í rannsókninni, þau Anna Jansson og Lars Roepstorff.
Knapi og hestur á ferð. Settur var æðaleggur í hestana (festur með hvítu bandi um háls). Á hjálm knapans var fest GPS-tæki, á fótum og lend hestsins eru nemar til að meta hreyfingarnar og útbúinn var sérstakur hnakkur með vösum til að þyngja með blýi.
Hér má betur sjá búnaðinn sem var notaður. Undirdýnurnar voru rúm 17 kg og hægt var að bæta 20 kg af blýi í hnakkinn (10 kg hvorum megin).

Þegar mesti þunginn (35%) var prófaður þurfti knapinn að ríða með 15 kg vesti.

Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir. Myndir Sveinn Ragnarsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári