Áhugamannamót Íslands á Akranesi

  • 27. júní 2022
  • Fréttir

Sigurvegarar í Gæðingaskeiði: Vilborg Smáradóttir frá Sindra, Ólafur Guðmundsson frá Dreyra, Belinda Ottósdóttir frá Dreyra og Elmar Ingi Guðlaugsson frá Fáki. Ljósm. Dreyri.

Mótið verður 15.-17. júli að félagssvæði Dreyra, Æðarodda á Akranesi

Áhugamannamót Íslands verður haldið dagana 15.-17. júli að félagssvæðinu Æðarodda á Akranesi. Keppt verður í eftirfarandi greinum Tölt T3, Tölt T4, Tölt T7, Fjórgangur V2, V5, Fimmgangur F2, gæðingaskeið og 100 m Flugskeið.

Allir þeir knapar sem hafa náð 22 ára aldri (á árinu) og eldri og hafa ekki keppt í meistaraflokki á síðastliðnum tveimur árum hafa þátttökurétt á mótinu.

Skráningarfresturinn er frá og með 26. júni og lýkur miðvikudaginn þann 13. júli kl.00

Skráningargjaldið er 7.000 kr fyrir hringvallargreinar en 5.000 kr fyrir skeiðgreinar og fer skráningin fram í gegnum sportfengur.com.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link