Aldrei of ungur eða gamall til að láta drauma rætast
Eitt það skemmtilegasta við hestamennskuna er hversu fjölbreytt og sameinandi hún er. Þar sjáum við fólk af öllum kynjum og aldri taka þátt og finna sér sinn stað innan hestamennskunnar.
Yfirlit hófst í morgun á Rangárbökkum á Hellu. Sá óvenjulegi atburður átti sér stað í fyrsta hollinu en þar riðu í braut tveir knapar með 41 árs aldursmun og voru bæði að sýna kynbótahross í fyrsta sinn. Þetta voru þau Óðinn Örn Jóhannsson og Viktoría Huld Hannesdóttir.
Í hestamennskunni sannast það að þú ert aldrei of ungur eða gamall til að láta drauma þína rætast.
Kylja sló í gegn í 1.holli ársins á kynbótasýningum
„Ósanngjarnt gagnvart dómurum“
Drífandi og Bella hæst dæmd á Romme
Söguleg brautskráning við Hestafræðideild Háskólans á Hólum