Alendis komið til að vera

  • 22. júní 2021
  • Fréttir

Við, starfsfólk Alendis TV viljum þakka hestamönnum viðtökurnar sem við höfum fengið á síðasta árinu frá því við byrjuðum.

Nú var stærsta vikan okkar frá upphafi að klárast, þar sem við sýndum samtímis frá kynbótasýningum á þremur stöðum og svo feikna sterku Reykjavíkurmeistaramóti með hátt í 900 skráningum. Við viljum þakka mótshöldurum og sýningarstjórum fyrir frábært samstarf.

 

Við hlökkum til að halda áfram að sýna frá sem flestum viðburðum og geta boðið áhorfendum heima í stofu upp á bestu hesta landsins í appinu okkar eða á síðunni. Að sjálfsögðu minnum við ykkur líka á að það er hægt að horfa á allt efni aftur hvenær sem ykkur hentar á tímaflakkinu hjá okkur. Við stöndum í þeirri trú að það sé hægt að gera svo miklu meira fyrir íþróttina okkar, við erum rétt að byrja og erum virkilega spennt fyrir framhaldinu.

 

Nú þegar eru allar forsýningar frá kynbótadómum komnar inn á vefverslunina okkar  https://shop.alendis.is/ í fullum gæðum. Ef þið viljið eignast myndbrot frá Reykjavíkurmeistaramóti eða öðrum viðburðum getið þið sent beiðni á [email protected] og við munum koma því í vinnslu.

Við minnum á að dreifing á uppteknu efni beint frá okkar síðum/öppum er óheimil.

 

Næst á dagskrá hjá okkur eru svo Skeiðleikar 2 – sem haldnir verða á miðvikudaginn, 23. Júní. Í beinu framhaldi verður svo sýnt frá Tölumóti Harðar á fimmtudaginn, þar sem knapar reyna að næla sér í einkunn til að öðlast þátttökurétt á Íslandsmót.

Síðast en ekki síst minnum við auðvitað á Íslandsmótið, en sú veisla hefst 30. júní og verður allt mótið í beinni útsendingu. Ef þú ert ekki nú þegar kominn með áskrift, þá eru næstu dagar og vikur svo sannarlega rétti tíminn til að fá sér áskrift.

 

Bestu kveðjur,

Edda Hrund & allt Alendis TV teymið

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link