Álfamær og Safír efst í A og B flokki
Álfamær og Árni Björn Mynd: Nicki Pfau
Riðin var forkeppni í A og B flokki í dag í Víðidalnum. Boðið er upp á tvær umferðir og verður seinni umferðin riðin á laugardag. Hestamannafélagið Fákur hefur heimild til að senda 15 efstu þátttakendurna í gæðingaflokkum á Landsmót.
Safír frá Mosfellsbæ og Sigurður V. Matthíasson eru efstir í B flokknum með 8,69 í einkunn. Annar eftir forkeppni eru þeir Gullhamar frá Dallandi og Hinrik Bragason með 8,61 í einkunn og í þriðja með einkunnina 8,49 eru Óríon frá Strandarhöfði og Ásmundur Ernir Snorrason.

Safír frá Mosfellsbæ og Sigurður Vignir Matthíasson á Landsmóti 2022
Í A flokknum eru efst eftir forkeppni Álfamær frá Prestsbæ og Árni Björn Pálsson með 8,88 í einkunn. Jafnir í öðru eru þeir Atlas frá Hjallanesi, knapi Teitur Árnason, og Seðill frá Árbæ, knapi Árni Björn, með 8,74 í einkunn.
Hægt er að horfa á mótið í beinni á Alendis en dagskrá og ráslista eru að finna í HorseDay smáforritinu. Dagskrá laugardagsins mun liggja fyrir á laugardagsmorgun eftir að skráningu í seinni umferð lýkur.
Á morgun er keppt í barna-, unglinga- og ungmennaflokki.
B flokkur – Gæðingaflokkur 1 – Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Safír frá Mosfellsbæ Sigurður Vignir Matthíasson 8,69
2 Gullhamar frá Dallandi Hinrik Bragason 8,61
3 Óríon frá Strandarhöfði Ásmundur Ernir Snorrason 8,58
4 Stimpill frá Strandarhöfði Stella Sólveig Pálmarsdóttir 8,58
5 Hylur frá Flagbjarnarholti Teitur Árnason 8,58
6 Þormar frá Neðri-Hrepp Viðar Ingólfsson 8,58
7 Gná frá Skipaskaga Árni Björn Pálsson 8,53
8 Dússý frá Vakurstöðum Teitur Árnason 8,53
9 Áki frá Hurðarbaki Benjamín Sandur Ingólfsson 8,52
10 Stormfaxi frá Álfhólum Þorvaldur Árni Þorvaldsson 8,51
11 Hamar frá Varmá Gústaf Ásgeir Hinriksson 8,50
12 Tesla frá Ásgarði vestri Jón Herkovic 8,49
13 Hrafn frá Breiðholti í Flóa Sigurbjörn Bárðarson 8,49
14 Sólfaxi frá Reykjavík Hákon Dan Ólafsson 8,45
15 Björk frá Vestra-Fíflholti Kári Steinsson 8,42
16 Sylvía frá Kvíarhóli Viðar Ingólfsson 8,42
17 Amor frá Reykjavík Bertha María Waagfjörð 8,37
18 Sóldís frá Heimahaga Jón Finnur Hansson 8,34
19 Sigur frá Auðsholtshjáleigu Matthías Leó Matthíasson 8,33
20 Gígjar frá Bakkakoti Róbert Bergmann 8,31
21 Hríma frá Kerhóli Haukur Tryggvason 8,30
22 Hrönn frá Torfunesi Birta Ingadóttir 8,22
23-24 Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson 8,22
23-24 Orka frá Skógarnesi Arnar Máni Sigurjónsson 8,22
25 Blæja frá Reykjavík Svandís Beta Kjartansdóttir 8,20
26 Hamar frá Húsavík Barla Catrina Isenbuegel 8,08
A flokkur – Gæðingaflokkur 1 – Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Álfamær frá Prestsbæ Árni Björn Pálsson 8,88
2-3 Seðill frá Árbæ Árni Björn Pálsson 8,74
2-3 Atlas frá Hjallanesi 1 Teitur Árnason 8,74
4 Nagli frá Flagbjarnarholti Sigurbjörn Bárðarson 8,65
5 Nóta frá Flugumýri II Eyrún Ýr Pálsdóttir 8,63
6 Villingur frá Breiðholti í Flóa Sylvía Sigurbjörnsdóttir 8,62
7 Vísir frá Ytra-Hóli Hinrik Bragason 8,61
8 Viljar frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,57
9 Jökull frá Breiðholti í Flóa Sylvía Sigurbjörnsdóttir 8,57
10 Vakar frá Auðsholtshjáleigu Matthías Leó Matthíasson 8,50
11-12 Stilla frá Ytra-Hóli Þorvaldur Árni Þorvaldsson 8,49
11-12 Seiður frá Hólum Konráð Valur Sveinsson 8,49
13 Vigur frá Kjóastöðum 3 Sigurður Vignir Matthíasson 8,48
14 Ketill frá Hvolsvelli Ásmundur Ernir Snorrason 8,46
15 Fákur frá Oddhóli Sara Sigurbjörnsdóttir 8,43
16-17 Bláfeldur frá Kjóastöðum 3 Sigurður Vignir Matthíasson 8,40
16-17 Luther frá Vatnsleysu Jón Herkovic 8,40
18 Reyr frá Hárlaugsstöðum 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson 8,25
19 Frami frá Efri-Þverá Barla Catrina Isenbuegel 7,97
20 Mói frá Árbæjarhjáleigu II Ragnar Snær Viðarsson 7,89
21 Organisti frá Vakurstöðum Teitur Árnason 7,63
22 Leynir frá Garðshorni á Þelamörk Eyrún Ýr Pálsdóttir 7,61
23 Abel frá Hjallanesi 1 Guðjón G Gíslason 7,45
24 Persía frá Velli II Jón Herkovic 7,41
25 Vigri frá Bæ Viðar Ingólfsson 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum