Álfheiður leiðir í tölti í unglingaflokki
Álfheiður Þóra Ágústsdóttir er efst í tölti unglingaflokki eftir forkeppni Mynd: Gunnhildur Ýrr
Eftir að keppni lauk í gæðingaskeiði á Íslandsmóti barna og unglinga í dag á Selfossi var farið í tölt T1 í unglingaflokki.
Góð skráning var en 33 knapar voru skráðir til leiks. Eftir forkeppni stendur efst Álfheiður Þóra Ágústsdóttir á Óskamey frá Íbishóli með 7,07 í einkunn. Jafnar í öðru sæti með 7,00 í einkunn eru Emma Rún Sigurðardóttir á Vála frá Efra-Langholti og Elsa Kristín Grétarsdóttir á Arnari frá Sólvangi.
Hægt er að sjá allar niðurstöður, sundurliðun dómara og dagskrá mótsins á snjallforriti HorseDay.
Niðurstöður úr forkeppni tölti T1 í unglingaflokki
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Álfheiður Þóra Ágústsdóttir Óskamey frá Íbishóli 7,07
2-3 Elsa Kristín Grétarsdóttir Arnar frá Sólvangi 7,00
2-3 Emma Rún Sigurðardóttir Váli frá Efra-Langholti 7,00
4 Apríl Björk Þórisdóttir Lilja frá Kvistum 6,93
5-6 Loftur Breki Hauksson Fylking frá Austurási 6,87
5-6 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Eyja frá Hrísdal 6,87
7 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Þytur frá Skáney 6,80
8 Linda Guðbjörg Friðriksdóttir Áhugi frá Ytra-Dalsgerði 6,77
9-11 Erla Rán Róbertsdóttir Fjalar frá Litla-Garði 6,63
9-11 Hákon Þór Kristinsson Tenór frá Litlu-Sandvík 6,63
9-11 Kristín Rut Jónsdóttir Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ 6,63
12 Róbert Darri Edwardsson Rökkvi frá Hólaborg 6,60
13-15 Ögn H. Kristín Guðmundsdóttir Tannálfur frá Traðarlandi 6,50
13-15 Emma Rún Arnardóttir Gletta frá Eystra-Fróðholti 6,50
13-15 Árný Sara Hinriksdóttir Moli frá Aðalbóli 1 6,50
16 Greta Berglind Jakobsdóttir Saga frá Kálfsstöðum 6,47
17 Kristín María Kristjánsdóttir Skjóni frá Skálakoti 6,37
18 Elísabet Benediktsdóttir Hildingur frá Sómastöðum 6,30
19 Sigríður Elva Elvarsdóttir Muni frá Syðra-Skörðugili 6,27
20-21 Hjördís Halla Þórarinsdóttir Krummi frá Hestkletti 6,20
20-21 Viktor Leifsson Eldey frá Mykjunesi 2 6,20
22 Jórunn Edda Antonsdóttir Jaðar frá Hvolsvelli 6,13
23 Ísabella Helga Játvarðsdóttir Dögun frá Strandarhjáleigu 6,07
24-26 Vigdís Björk Sveinbjörnsdóttir Dimma frá Varmalæk 5,93
24-26 Fríða Hildur Steinarsdóttir Hrynjandi frá Hrísdal 5,93
24-26 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Fenrir frá Kvistum 5,93
27 Tristan Dagur Þórisson Garún frá Þjóðólfshaga 1 5,90
28 Emma Rún Sigurðardóttir Fáni frá Sperðli 5,80
29 Viktor Arnbro Þórhallsson Gæfa frá Dalsmynni 5,73
30 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir Bláskeggur frá Hafsteinsstöðum 5,57
31 Kristín Gyða Einarsdóttir Bryggja frá Feti 5,33
32 Álfrún Mjöll Sveinsdóttir Óskastund frá Sökku 4,80
33 Karólína Ævarr Skúladóttir Litli brúnn frá Eyrarbakka 0,00
Álfheiður leiðir í tölti í unglingaflokki
Hæst dæmdi hestur í heimi