Alfons Norðurlandameistari í A flokki ungmenna
Alfons Bergqvist og Bjartur frá Strandarhjáleigu eru Norðurlandameistarar í A flokki ungmenna.
Síðast á dagskrá í dag voru A úrslit í A flokki ungmenna. Alfons Bergqvist og Bjartur frá Strandarhjáleigu voru þar hlutskarpastir og eru Norðurlandameistarar með 8,45 í einkunn. Í öðru sæti var Alice Ekman og Karri frá Gauksmýri með 8,41 í einkunn og í því þriðja var Ester Östberg á Hátind frá Álfhólum með 8,37 í einkunn.
Kristín Eir Hauksdóttir Holaker og Engill frá Ytri-Bægisá 1 kepptu fyrir Íslandshönd en þau voru í efstu sætum fyrir skeiðið sem tókst ekki hjá þeim í dag og enduðu þau í sjöunda sæti.
Hægt er að sjá dagskrá og ráslista á HorseDay og horfa á mótið í beinni á EiðfaxaTV.
Niðurstöður úr A úrslitum í A flokki ungmenna
| Sæti | Knapi | Hross | Land | Einkunn |
| 1 | Alfons Bergqvist | Bjartur frá Strandarhjáleigu | Svíþjóð | 8,45 |
| 2 | Alice Ekman | Karri frá Gauksmýri | Svíþjóð | 8,41 |
| 3 | Ester Östberg | Hátindur frá Álfhólum | Svíþjóð | 8,37 |
| 4 | Mathilde Løkke Torup | Kári frá Korpu | Danmörk | 8,32 |
| 5 | Mathilde Hudlebusch Vestergaard | Hroki frá Margrétarhofi | Danmörk | 8,30 |
| 6 | Alma Jonsson | Mói frá Efri-Fitjum | Svíþjóð | 8,16 |
| 7 | Kristín Eir Hauksdóttir Holaker | Engill frá Ytri-Bægisá I | Ísland | 7,33 |
| 8 | Olivia Kasperczyk | Már frá Rauðalæk | Danmörk | 7,30 |
Alfons Norðurlandameistari í A flokki ungmenna
Endurtók leikinn tíu árum seinna