Álftanesmótið í hestaíþróttum
Opið íþróttamót Sóta verður haldið á Álftanesi dagana 16. – 17.maí n.k. ef næg þátttaka fæst. Skráning hefst 8. maí og lýkur 13. maí kl. 20:00
Við viljum hvetja minna vana keppendur til að koma og taka þátt í móti hjá litlu félagi. Góður undirbúningur fyrir mót hjá stærri félögum og frábært tækifæri fyrir keppendur á öllum aldri sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni. Allir velkomnir! Það er mál manna að sérstaklega gaman sé að koma og keppa hjá Sóta á Álftanesi.
Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum greinum
Fimmgangur F2: ungmenni, 2 flokkur 1. flokkur
Fjórgangur V2: börn, unglingar, ungmenni, 3 flokkur, 2 flokkur, 1 flokkur
Tölt T3: börn, unglingar, ungmenni , 3.flokkur, 2. flokkur 1. flokkur
Tölt T7: börn, 3 flokkur
Slaktaumatölt T4: unglingar, ungmenni, 2. flokkur,1. flokkur
Pollar
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef ekki næst nægileg þátttaka.
Skráningagjöld eru 2.500 kr. á hverja keppnisgrein í fullorðinsflokkum og 2.000.- fyrir börn, unglinga og ungmenni. Pollar kr. 500.- kr. Skráning hefst 8. maí og lýkur 13 maí kl. 20:00 .
ATHUGIÐ: Ekki verður hægt að skrá sig eftir að skráningarfresti lýkur.
Skráning er á Sportfeng. Athugið Í skráningakerfi Sportfengs er:
3.flokkur skráður sem minna vanir
Pollaflokkur skráður sem annað/annað
Til hjálpar að skrá sig í flokk:
1. flokkur: Meira vanir keppendur. Hámark 3 keppendur inni á vellinum í einu.
2. flokkur: Hugsaður fyrir minna vant keppnisfólk. Hámark 3 keppendur inni á vellinum í einu.
3. flokkur: Fyrir byrjendur á keppnisvellinum. Þrír inná í einu.
Frekari upplýsingar um lög og reglur í keppnum LH má finna á lhhestar.is og á viðburðarsíðu mótsins og hvetjum við alla til að lesa þær vel og vandlega. http://www.lhhestar.is/static/files/Log_og_reglur/lh-log-og-reglur-mars_2015-1.pdf
Nánari upplýsingar verða birtar á heimasíðu félagsins www.soti.is, og fésbókarsíðu félagsins (viðburður: Álftanesmótið í hestaíþróttum)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH