Álfur teygir sig í Sleipnisbikarinn
Meiri líkur en minni eru á að Álfur frá Selfossi keppi um Sleipnisbikarinn fyrir afkvæmi á LM2012 í Reykjavík. Álfur á nú 48 dæmd afkvæmi og ennþá eru nokkur hundruð kynbótahross ósýnd í forskoðun.
Lágmarksfjöldi fulldæmdra afkvæma til heiðursverðlauna er fimmtíu. Eftir sýningaárið 2011 átti Álfur 29 fulldæmd afkvæmi og ljóst að allbratt myndi verða að fylla upp í töluna. Nú vantar hins vegar ekki nema tvö upp á. Tíu trippi eru þegar komin með byggingardóm yfir 8,0 og ekki ólíklegt að einhver þeirra verði fulldæmd áður en forskoðun lýkur.
Helsti keppinautur Álfs um Sleipnisbikarinn, það er að segja ef Álfur nær afkvæmafjölda, er Markús frá Langholtsparti, sem var þegar kominn með heiðursverðlaun í fyrra. Markús er með 123 stig í aðaleinkunn kynbótamats en Álfur er með 127 stig.
Reikna má með, samkvæmt reynslu, að Álfur lækki eitthvað í aðaleinkunn samhliða auknum fjölda dæmdra afkvæma. Kynbótamat Markúsar mun hins vegar varla breytast mikið þótt fleiri dæmd afkvæmi bætist við. Þó má benda á að hæst dæmdi 4 vetra foli ársins, Hrafn frá Efri-Rauðalæk (8,28) er undan honum og ef fleiri trippi standa sig vel er ekki gott að segja. Það er allavega ljóst að mjótt verður á munum og spennandi að sjá hvernig fer.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH