Allir íslensku knaparnir í A úrslitum og tveir titlar í hús
Jóhanna Margrét veifar til áhorfenda Mynd: Krijin.de
Þá er forkeppni lokið í tölti hér í Hollandi og þvílíkur árangur hjá íslenska landsliðinu það sem af er móti. Allir íslensku knaparnir eru í A úrslitum í tölti og efst er Jóhanna Margrét Snorradóttir á Bárði frá Melabergi með 8,77 í einkunn. Viðar Ingólfsson er í fimmta sæti á Þór frá Stóra-Hofi eftir forkeppni.
Jón Ársæll Bergmann og Frár frá Sandhól eru efstir eftir forkeppni í ungmennaflokki og er Herdís Björn Jóhannsdóttir í öðru sæti á Kvarða frá Pulu.
Jón Ársæll og Jóhanna Margrét eru bæði orðin Heimsmeistarar í samanlögðum fjórgangsgreinum.
Fullorðnir – Tölt T1 – Niðurstöður – 10 efstu
1 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bárður frá Melabergi – IS – 8.77
2 Sys Pilegaard Abel fra Tyrevoldsdal – DK – 8.43
3 Lisa Schürger Kjalar frá Strandarhjáleigu – DE -8.23
4 Veronika Kremmer Ísbjörn vom Vindstaðir – HU – 8.03
5 Viðar Ingólfsson Þór frá Stóra-Hofi – IS – 8.00
5 Jamila Berg Dibi Toppur frá Auðsholtshjáleigu – SE -8.00
7 Kristján Magnússon Óskar från Lindeberg – SE. – 7.80
8 Frauke Schenzel Jódís vom Kronshof – DE – 7.73
9 Dennis Hedebo Johansen Muni fra Bendstrup – DK – 7.67
10 Gabrielle Severinsen Tígull fra Kleiva – NO – 7.33
Fullorðnir – Tölt T1 – Niðurstöður – 10 efstu
1 Jón Ársæll Bergmann Frár frá Sandhól 7.67
2 Herdís Björg Jóhannsdóttir Kvarði frá Pulu 7.17
3 Rakel Brattalid Tindskard Sílas vom Forstwald 7.00
4 Dromelot van Helvoort Rokkur frá Ytra-Vallholti 6.87
5 Luisa Husby Sem Bakkus fra Grundet Hus 6.73
5 Lára Hesselman Álfur från Knutshyttan 6.73
7 Maria Gjellestad Bosvik Tindur fra Jakobsgården 6.70
8 Esmee Versteeg Hugur frá Vestra-Fíflholti 6.67
9 Amanda Frandsen Tinna frá Litlalandi 6.63
10 Anna Sager Steggur frá Hrísdal 6.37
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH