Allir stóðust stöðupróf

  • 28. febrúar 2011
  • Fréttir
Allir stóðust stöðupróf

Föstudaginn 25.febrúar hélt æskulýðsnefnd Sleipnis stöðupróf í grænu og gulu knapamerki í reiðhöll Sleipnis þar sem ellefu knapar þreyttu verkleg próf.

„Skemmst er frá því að segja að allir náðu prófi. Reiðkennari var Þorvaldur Árni Þorvaldsson og prófdómari Sigrún Sigurðardóttir reiðkennari en hún er, að öðrum ólöstuðum, reynslumesti reiðkennari landsins í knapamerkjakennslu. 

Við erum stolt af þessum árangri og óskum öllum sem þreyttu próf til hamingju! “ segir í fréttatilkynningu frá æskulýðsnefnd Sleipnis.

Eiðfaxi óskar knöpunum einnig til hamingju með árangurinn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link