„Allt saman ævintýri líkast“
Ragna situr á Kveik og Birgir Leó á dóttur hans Ísabellu mynd: Birgit Zimmermann
Í tímaritinu er m.a. að finna viðtal við Rögnu og Birgir hrossaræktendur að Stangarlæk 1. Í viðtalinu ræðir blaðamaður við þau um þeirra bakgrunn í hestamennskunni, þeirra ræktun og stóðhestinn Kveik frá Stangarlæk 1 sem nú er úr þeirra eigu. Við skulum grípa niður í viðtalið þar sem verið er að ræða Landsmótið í Víðidal árið 2018 þar sem Kveikur sló í gegn.
Sumir fóru það langt að tala um öskubuskuævintýri en hvernig fór umræðan og allt það sem athyglinni fylgdi í þau Rögnu og Birgi?
„Við vorum gríðarlega ánægð með árangurinn og vorum að sjálfsögðu í skýjunum. Þessari umræðu um öskubuskuævintýri var auðsvarað. Svona lagað gerist ekki á einni nóttu við vorum búin að reyna ýmislegt í hrossaræktinni og vera í hestamennsku frá því við vorum börn, þó svo að aðrir hafi ekki endilega séð allt sem gerðist hjá okkur öll þessi ár. Svo er það hitt að Kveikur er ekki eingöngu heppni að öðru leyti en því að öll hrossarækt er bundin heppni. Þetta er þrautræktaður hestur kominn af sterkum stofnum og við stöndum á öxlum þeirra ræktenda sem ræktuðu foreldra hans og forfeður.“

Tryggðu þér áskrift að Eiðfaxa, fáðu hann sendan heim að dyrum og styddu um leið við faglega umfjöllun um íslenska hestinn og allt það sem honum tengist með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH