„Alltaf eins og hugur manns“

  • 10. desember 2023
  • Fréttir

Andvari hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á LM2004

Vignir Siggeirsson segir frá Andvara frá Ey I

Í tölublöðum Eiðfaxa er yfirleitt að finna viðtöl við þekkta knapa sem hafa á ferli sínum kynnst mörgum gæðingum og þeir fengnir til þess að lýsa hestunum út frá þeirra upplifun á þeim. Í tölublaði Eiðfaxa haust árið 2022 var viðtal við Vignir Siggeirsson sem hefur á ferli sínum komið á bak mörgum gæðingum.

Hér fyrir neðan er að finna bút úr þessu viðtali þar sem Vignir lýsir Andvara frá Ey I, Hrafnkell Guðnason tók viðtalið og skrifaði.

 

Ég fæ Andvara frá Ey í hendurnar veturinn sem ég er að temja á Stóðhestastöðinni, hann var samt ekki einn af þessum stöðvarhestum en datt bara upp í hendurnar á mér og það er svolítið skemmtileg sagan af því. Ég var sem sagt að vinna á Stóðhestastöðinni í Gunnarsholti með Eiríki heitnum Guðmundssyni, það var frábær vetur og í lok apríl var alltaf sýning á stöðinni sem var geysivel sótt en þar voru stöðvarhestarnir dæmdir og sýndir. 

Þá var það orðið þannig að kallar úr nágrenninu komu oft með ungar vonarstjörnur í dóm, í byggingardóm allavegana og máttu alveg skrá í fullnaðardóm ef þeir vildu. Menn voru að koma þarna með þriggja og fjögurra vetra fola og Kalli í Ey kemur þarna með rauðan þriggja vetra fola í byggingardóm. Mig minnar að hann hafi farið í 7,98 í byggingu sem þótti bara ágætt á fjögurra vetra hesti.  Ég kannaðist aðeins við Kalla,  alltaf var hann mættur alls staðar þar sem eitthvað var verið með hross, þarna tökum við tal saman og hann spyr mig strax hvort ég sé ekki til í að taka þann rauða fyrir sig, það sé nú Landsmót um sumarið. Klárinn var nú svona öskrandi og hlaupandi í taumi hjá karlinum þegar hann var að biðja mig um þetta og ég spyr hann hvor hann sé svolítið taminn. Hva já já hann er taminn svarar Kalli eins og honum einum var lagið. 

Hann skilur hestinn eftir enda var hann taminn og ekkert mál, daginn eftir set ég upp í hann beisli og legg á hann hnakk og stíg á bak. Klárinn æðir af stað á tölti á ógnarhraða og ég finn strax að hann er nú ekkert mikið taminn, en þetta var greinilega eðlisgæðingur. Við erum svo komnir langt út á sand og ég hugsa með mér við endum bara niðrí Ey, ég sit á baki og klárinn á fullri ferð á tölti, það endar svo með því að ég næ aðeins að hægja á honum og stekk af baki, sný honum við, stekk á bak og klárinn brunar með mig á yfirferðartölti aftur heim. Svona var nú fyrsti reiðtúrinn minn á Andvara, en svo var þetta bara svo mikill gæðingur. Fyrst vildi hann bara tölta, brokkaði ekki spor en brokkið kom svo mjög gott seinna. 

Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa honum Andvara, helst þannig að hann var bara alltaf eins og hugur manns. Og eftir þennnan fyrsta reiðtúr okkar þá kepptist ég við að þjálfa, þetta var í byrjun maí svo tíminn var ekki mikill einhverjar fjórar vikur í kyndbótadóma á Hellu sem var forskoðun fyrir Landsmótið. Við förum svo á Hellu í kynbótadóm og þá hækkar hesturinn úr 7,98 í 8,33 fyrir byggingu sem munaði náttúrulega heilmikið um. Þarna fær hann 8,5 fyrir tölt og vakti töluverða athygli, ég vissi orðið að þarna var stórkostlegur hestur á ferðinni, var búinn að finna að það var svakalegt brokk í hestinum en það var bara eftir að stilla hann á það, hann var bara þannig í gerðinni að það var einfaldara og léttara fyrir hann að tölta en brokka. Enda var tíminn sem ég var búinn að hafa með hestinum þegar þarna var komið sögu mjög stuttur. Allavegana nær hann inná Landsmót og ég gleymi því aldrei hvað Kalli heitinn í Ey var ánægður, hann var engum líkur og bara forréttindi að komast í að vinna fyrir þennan kall. 

Andvari sannaði það svo sem um munaði fimm vetra árið eftir þegar hann fær svo 9,5 fyrir tölt og 9 fyrir brokk og fegurð í reið og vekur gríðarlega athygli. Hann er þarna sem klárhestur með 8,33 fyrir byggingu 8,40 fyrir hæfileika og aðaleinkunn upp á 8,36 sem var mjög há einkunn á klárhest á þessum tíma.

Klárhestar áttu á þessum árum ekkert sérstaklega upp á pallborðið og það var oft verið að hjakka í mér að leggja hann, enda hefði það sjálfsagt verið hægt en mér fannst það aldrei borga sig. Þessi hestur hefði að mínu mati átt skilið 9,5 eða 10 fyrir geðslag, hann var svo þjáll, en það var svipað og við vorum að tala um áðan að þessi þjálu og meðfærilegu hross voru oft bara að fá 8 eða 8,5 fyrir vilja og geðslag. Ég hef nefnilega alltaf viljað hafa hrossin hjá mér þannig að þau haldi á sér og ég þurfi ekki að hanga í taumnum, en fyrir vikið voru þau oft að fá bara 8 eða 8,5 fyrir vilja, bara reiðvilji. 

Það var heldur ekki eins algengt og í dag að hross væru að fá 9,5 fyrir tölt eins og Andvari fékk fimm vetra og reyndar annar stóðhestur sem ég var með Kjarkur frá Egilstaðabæ, líka fimm vetra gamall.

Hann var ólíkindatól hann Andvari, það var svo mikið eðli í honum, gangöryggi, hann var bara eins og stórfljót sem flæddi þegar maður setti í hann hælinn. Ég held að það hafi allir sem á einhvern hátt kynntust Andvara orðið hrifnir af honum, þó ekki væri nema bara að umgangast skepnuna, hann var  bara svo mikill karakter.

Saga Andvara sem kynbótahests er vel þekkt, hann hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi á LM 2002 og heiðursverðlaun tveimur árum seinna. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link