„Alltaf óvæntur sigur þegar klukkan ræður“-
Eins og komið hefur fram var það Árni Björn Pálsson liðsmaður Líflands sem sigraði Smalann í Meistaradeild VÍS í gær á hryssunni Korku frá Steinnesi. Smalinn er skemmtileg grein að mörgu leyti, ekki síst því að það er klukkan og fjöldi felldra súla sem ræður röðun knapa. Eftir forkeppnina var Árni Björn í 8.sæti en 10 fljótustu knaparnir riðu úrslitaumferðina. Efstur var Valdimar Bergstað á Stúf frá Miðkoti sem sigraði þessa grein í fyrra, þá með Eyjólf Þorsteinsson í hnakknum, sem var þriðji eftir forkeppnina á Bróður frá Stekkjardal. Annar var Sigurður Sigurðarson á Reyk frá Minni-Borg.
Nokkrir knapar fóru brautina án þess að fella eina einustu súlu. Það voru þau Árni Björn Pálsson, Þórdís Erla Gunnarsdóttir á Ösp frá Enni, Hinrik Bragason á Magna og Lena Zielinski á Heklu frá Hólshúsum. Tveir knapar gerðu hins vegar ógilda sýningu, þeir Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Daníel Jónsson.
Svona var staðan eftir forkeppnina:
Nr Keppandi: Lið Hestur Tími Felldar Refsistig Heildarstig
1 Valdimar Bergstað Málning Stúfur frá Miðkoti 48,44 2 300 28 272
2 Sigurður Sigurðarson Lýsi Reykur frá Minni-Borg 48,76 2 280 28 252
3 Eyjólfur Þorsteinsson Málning Bróðir frá Stekkjardal 48,84 2 270 28 242
4 Sigurður V. Matthíasson Málning Gyðja frá Kaðlastöðum 49,83 1 240 14 226
5 Jakob S. Sigurðsson Frumherji Blær frá Akranesi 49,46 3 250 42 208
6 Sigurbjörn Bárðarson Lífland Bjarki frá Sunnuhvoli 50,58 2 230 28 202
7 Ragnar Tómasson Lífland Hekla frá Selfossi 51,80 2 220 28 192
8 Árni Björn Pálsson Lífland Korka frá Steinnesi 53,78 0 170 0 170
9 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Hestvit Saga frá Lynghaga 53,31 2 190 28 162
10 Artemisia Bertus Auðsholtshjáleiga Snilld frá Auðsholtshjáleigu 52,02 3 200 42 158
11 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Ösp frá Enni 56,49 0 140 0 140
12 Bylgja Gauksdóttir Auðsholtshjáleiga Grýta frá Garðabæ 53,66 3 180 42 138
13 Viðar Ingólfsson Frumherji Tófa frá Laugavöllum 49,13 9 260 126 134
14 Ólafur Ásgeirsson Frumherji Hrafn frá Miðkoti 54,00 2 160 28 132
15 Hinrik Bragason Árbakki / Hestvit Magna 56,68 0 130 0 130
16 Halldór Guðjónsson Lýsi Nóta frá Margrétarhofi 54,61 2 150 28 122
17 Lena Zielinski Lýsi Hekla frá Hólshúsum 56,94 0 120 0 120
18 Teitur Árnason Árbakki / Hestvit Örk frá Uxahrygg 51,94 8 210 112 98
19 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter Gnótt frá Mykjunesi 57,11 4 110 56 54
20 Daníel Jónsson Top Reiter Ringó frá Kanastöðum 0,00 0 0 0 0
20 Þorvaldur Á. Þorvaldsson Top Reiter Alda frá Hvoli 0,00 0 0 0 0
Að loknum úrslitasprettunum riðlaðist röðin töluvert, nema Sigurður Sigurðarson í Þjóðólfshaga hélt 2.sætinu. Ragnar Tómasson skaut sér upp í þriðja sætið og ýtti þar með Eyjólfi niður í það fjórða. Árni Björn sigraði og sagði þetta að verðlaunaafhendingu lokinni:
Til hamingju Árni Björn. Var sigurinn óvæntur?
„Takk fyrir. Já, sigur er alltaf óvæntur þegar keppt er við klukkuna. Ég þekki nú Korku orðið nokkuð vel, hún er fljót og mjúk og fór brautina nokkuð áreynslulítið og við felldum aðeins eina súlu.“
Hvernig finnst þér Smalinn? Á þessi grein rétt á sér í Meistaradeildinni?
„Mér finnst greinin mjög skemmtileg. Bæði er gaman að taka þátt í henni og fylgjast með henni. Það er hraði og spenna sem einkenna hana og það er skemmtilegt. Kannski finnst mér gaman að henni af því að ég er með gott hross í greinina. Ég veit þó ekki hvort við eigum að halda henni inni í deildinni en við verðum þó að hafa í huga að deildin sé fjölbreytt og Smalinn á sinn þátt í að halda þeim fjölbreytileika á lofti. Svo er hún mjög áhorfendavæn, sem er eitthvað sem skiptir gríðarlegu máli.“
Eiðfaxi.is þakkar Árna Birni spjallið.
Úrslitin urðu þessi:
Sæti Keppandi: Lið Hestur Tími Felldar Refsist Stig
1 Árni Björn Pálsson Lífland Korka frá Steinnesi 46,92 1 270 14 256
2 Sigurður Sigurðarson Lýsi Reykur frá Minni-Borg 46,51 4 300 56 244
3 Ragnar Tómasson Lífland Hekla frá Selfossi 48,23 0 240 0 240
4 Eyjólfur Þorsteinsson Málning Bróðir frá Stekkjardal 47,08 2 260 28 232
5 Jakob S. Sigurðsson Frumherji Blær frá Akranesi 46,66 4 280 56 224
6 Sigurður V. Matthíasson Málning Gyðja frá Kaðlastöðum 49,23 1 230 14 216
7 Artemisia Bertus Auðsholtshjáleiga Snilld frá Auðsholtshjáleigu 50,69 0 210 0 210
8 Valdimar Bergstað Málning Stúfur frá Miðkoti 47,3 3 250 42 208
9 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Hestvit Saga frá Lynghaga 53,46 2 200 28 172
10 Sigurbjörn Bárðarson Lífland Bjarki frá Sunnuhvoli 50,21 4 220 56 164
Stigasöfnun knapa:
Nafn Lið Stig
Árni Björn Pálsson Lífland 12
Sigurður Sigurðarson Lýsi 10
Ragnar Tómasson Lífland 8
Eyjólfur Þorsteinsson Málning 7
Jakob S. Sigurðsson Frumherji 6
Sigurður V. Matthíasson Málning 5
Artemisia Bertus Auðsholtshjáleiga 4
Valdimar Bergstað Málning 3
Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Hestvit 2
Sigurbjörn Bárðarson Lífland 1
Sigasöfnun liða:
Lið Stig
Lífland 52
Málning 48
Auðsholtshjáleiga 36
Frumherji 34
Lýsi 31
Árbakki/Hestvit 24
Top Reiter 6
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson