Almannadalsmótið á laugardag
Hið árlega Almannadalsmót Fáks hefur göngu sína á laugardaginn en þar er kominn glæsilegur hringvöllur.
Í ár verður keppt í tölti á beinni braut en farið inn í hringinn með litlu börnin (sömu flokkar og í vetrarleikum Fáks). Mótið hefst kl. 14 á laugardaginn og er skráning á netinu en hægt er að senda tölvupóst á [email protected] og skrá sig (muna að tilgreina nafn knapa, nafn hests og uppruna og í hvaða flokki á að keppa). Við hvetjum sérstaklega Almannadals- og fjárborgaríbúa að taka þátt í mótinu.
Ekkert skráningargjald en skráningu lýkur á föstudagskvöldið.
Boðið verður upp á fríar grillaðar pylsur og meðlæti svo það er um að gera og ríða við í Almannadal á laugardaginn og hitta skemmtilega hestamenn, taka þátt í mótinu og gúffa í sig grilluðum pylsum.
Flokkar: Pollar (teymdir), börn, unglingar, ungmenni ,konur, karlar, ekki keppnisvanir (bæði fyrir konur og karla)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH