Alþjóðlegt meistaramót í Hollandi

  • 18. maí 2012
  • Fréttir
Alþjóðlegt meistaramót í Hollandi

Nýtt stórmót í Hollandi mun verða haldið í fyrsta sinn síðsumars. Alþjóðlegt meistaramót íslenska hestsins mun fara fram þann átjánda ágúst á leikvanginum Victoriapark í Wolvega, aðeins í níutíu mínútna akstursfjarlægð frá flugvellinum í Amsterdam. 

 
Mótið er nokkuð óvenjulegt. Átta lið, skipuð fjórum knöpum hvert, munu etja kappi í sex greinum á beinni braut: tölti, fimmgangi, fjórgangi, gæðingaskeiði, skeiðkappreiðum og stökkkappreiðum. Til mikils er að vinna því verðlaunahafar hverrar greinar fá væna fúlgu fjár.
 
Meistaramótið er hugarfóstur Mikes van Engelen og segir hann tilganginn vera að auka veg og vanda íslenska hestsins á hollenskri grundu, með því að sýna það allra besta sem hesturinn hefur upp á að bjóða. 
 
Meistaraknapar hafa tekið þessu nýja móti fagnandi og hafa þónokkrir stórmeistarar skráð sig til leiks, þar á meðal Jóhann Skúlason, Anne Stine Haugen, Agnar Snorri Stefánsson, Sigurður Matthíasson og Edda Rún Ragnarsdóttir, Uli og Irene Reber, Jolly Schrenk, Magnús Skúlason  ásamt gæðingaskeiðsmeistaranum Sigurði Marínussyni sem einmitt hampaði fyrsta heimsmeistaratitli fyrir hönd Hollands í fyrra.
 
Nánari upplýsingar um meistaramótið í Hollandi má nálgast á heimasíðu þess: www.themasterstournament.eu.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link