Alvarleg herpesveira herjar á hross í Evrópu

  • 6. mars 2021
  • Fréttir

Alvarlegur hrossasjúkdómur hefur blossað upp á meginlandi Evrópu sem valdið hefur dauða fjölda hrossa og miklum veikindum, en þetta kemur fram á vef Vísis. Allt verður gert til að verjast því að sjúkdómurinn, sem er herpesveira, berist til Íslands.

Um er að ræða mjög alvarlegan smitsjúkdóm í hrossum í Evrópu sem blossaði nýlega upp á stórmóti í hindrunarstökki sem haldið var í Valencia á Spáni. Þeir dýralæknar sem voru á svæðinu lýstu ástandinu sem skelfilegu en mjög illa gekk framan af að útvega næga læknishjálp handa hrossunum, en þau þurfa sérhæfða meðhöndlun allan sólarhringinn í sérstökum tjald hesthúsum. Til að fyllsta öryggis sé gætt hefur öllum hestakeppnum í Evrópu verið aflýst á meðan verð er að ná utan um veikindin.

Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun.

Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun er vel upplýst um veiruna, sem veldur þessum miklu veikindum. „Þetta snýst um hrinu tilfella, sem bráðum getur kallast faraldur af alvarlegum hrossasjúkdómi, sem er að völdum hestaherpes veiru, týpu 1. Þetta er svo alvarlegur sjúkdómur, við erum ekki að tala um bara hósta eða kvef,“ segir Sigríður.

En hvernig er þessi herpsveira? „Hún er þannig að það er ekki hægt að útrýma þessum sjúkdómi og ég vil taka það strax fram að þessi tegund af herpesveiru hefur aldrei borist til Íslands, á íslenska hrossastofninn. Við erum nú bara eitt af mjög fáum löndum í heiminum þar sem staðan er þannig. Það er ekki hægt að útrýma þessum sjúkdómi ef hann kemur vegna þess að, eins og margar aðrar herpesveirur þá verða hrossin varanlega sýkt.“

Sigríður vekur athygli á því að veiran gæti hæglega borist til Íslands með óhreinindum á fatnaði hestamanna, sem eru að koma til landsins og auðvitað búnaði, sem reyndar er bannað að flytja til landsins og því biður hún alla, sem fara á milli landa í tengslum við hestamennsku að gæta fyllstu varúðar.

„Ég hvet alla að fara varlega og fylgja reglunum,“ segir Sigríður.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar