Ályktu frá FT

  • 5. maí 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Heill hestur inn og heill hestur út.

Eftirfarandi ályktun sendi Félag tamningamanna frá sér eftir aðalfund árið 2012 og vill ítreka að ályktunin sé enn í fullu gildi:

Ályktun frá stjórn Félags tamningamanna
Í kjölfar umræðu um áverkaskýrslu MAST um heilbrigðisskoðun keppnis og sýningahrossa árið 2012 sér Félag tamningamanna ástæðu til að koma á framfæri eftirfarandi.

Samkvæmt dýraverndarlögum og keppnisreglum skulu hross sem koma til keppni og sýninga vera ósár. Félag tamningamanna hvetur alla þá sem stýra reglusetningum er varða keppni og sýningar hrossa til að samræma áverkaskoðanir og sjá til þess að hross séu skoðuð bæði fyrir og eftir keppni/sýningu. Hross sem skoðast með áverka fyrir keppni/sýningu fái ekki að taka þátt og hross sem skoðast með áverka að keppni/sýningu lokinni hljóti ekki einkunn eða verðlaun.

Félag tamningamanna vill minna á þá staðreynd að það er og verður alltaf knapinn sem er ábyrgur fyrir heilbrigði hestsins. Boð og bönn eru ekki til þess fallin að vinna á rótum vandans. Félag tamningamanna vill hvetja til upplýstrar umræðu og auka fræðslu og forvarnir um áverka almennt. Auk þess þarf að endurskoða allar hliðar móta og sýningahalds t.d. keppnis og sýningafyrirkomulag, umgjörð(velli), dómstörf o.s.frv.

Grundvallaratriðið er heill hestur inn og heill hestur út!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link