Ályktun frá FT um smitvarnarmál-

  • 7. desember 2010
  • Fréttir
Ályktun frá FT um smitvarnarmál-

Aðalfundur FT sl. föstudag fjallaði m.a. um smitvarnarmál og mikilvægi þeirra og var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða á fundinum:..

Aðalfundur FT, haldinn á Kænunni í Hafnarfirði 3. des. 2010, skorar á félagsmenn sína og hestamenn alla að virða smitvarnarreglur til hins ítrasta. Einnig beinir fundurinn því til yfirvalda að lögð verði aukin áhersla á smitvarnir, með frekari fræðslu, kynningu og eftirliti í flug- og skipshöfnum og tekið verði á brotum af fullri einurð samkvæmt lögum.

Greinargerð:
Heilbrigði íslenska hrossastofnsins er gríðarlega mikilvægt og þess virði að vernda með öllum ráðum.
Smitsjúkdómur sá er herjað hefur á á hross á Íslandi í ár og lamað alla atvinnustarfsemi í greininni er dýrkeypt lexía sem ekki má endurtaka sig.
Nauðsynlegt er að herða verulega á smitvörnum og mætti leita upplýsinga um hvernig slíkum málum er háttað annars staðar, t.d. á Nýja-Sjálandi þar sem mikil áhersla er lögð á að vernda bústofn.

www.tamningamenn.is
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link