Norðurlandamót Amanda og Tinna Norðurlandameistarar í fjórgangi ungmenna

  • 9. ágúst 2026
  • Fréttir

Áfram rúllar úrslitadagur  Norðurlandamóts í hestaíþróttum sem er að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.

Í A-úrslitum í fjórgangi ungmenna átti Ísland einn fulltrúa en það var Eva Kærnested á Loga frá Lerkiholti en þau hlutu 6,77 í einkunn og fimmta sætið. Norðurlandameistari er Amanda Frandsen frá Danmörku á Tinnu frá Litlalandi með 7,03 í einkunn.

Sæti Keppandi Þjóðerni Heildareinkunn
1 Amanda Frandsen / Tinna frá Litlalandi Danmörk 7,03
2-3 Saga Berggren / Kolfinnur från Margaretehof Svíþjóð 6,90
2-3 Tekla Petersson / Óríon frá Lækjamóti Svíþjóð 6,90
4 Lára Gardarsdottir Hesselman / Álfur från Knutshyttan Svíþjóð 6,87
5 Eva Kærnested / Logi frá Lerkiholti Ísland 6,77
6 Óskar Erik Kristjánsson / Kjarkur frá Vorsabæ II Danmörk 6,37

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link