Andvari frá Ey I á járn í tilefni dagsins
Heiðursverðlaunahesturinn Andvari frá Ey 1 verður heiðraður á Stóðhestaveislunni á Sauðárkróki í kvöld. Andvari, sem er á 23. vetri hefur verið járnaður af því tilefni og verið í léttu trimmi undanfarið og mun koma fram í reið í kvöld. Honum fylgja afkvæmi hans, m.a. Hekla frá Hólshúsum og Gaukur frá Garðsá.
Einnig mun Þóroddssonurinn Hringur frá Skarði sýna sig, en hann hefur hlotið 9.0 fyrir skeið og vilja og geðslag og alls 8.53 fyrir hæfileika, feikna hestur. Hinn litfagri Hlekkur frá Lækjamóti mætir einnig til leiks sem og hinn eini sanni Vígar frá Skarði, margverðlaunaður gæðingur, Íslandsmeistari og Landsmótssigurvegari sem m.a hefur hlotið 9.5 fyrir tölt og stökk og 9.0 fyrir hægt tölt og hægt stökk.
Þá kemur eftirtektarverður foli fram sem vakið hefur athygli, Hvinur frá Blönduósi heitir hann, og svo koma þeir Breki frá Eyði-Sandvík, Rauðkollur frá Eyvindarmúla og Laufi frá Syðra-Skörðugili.
Ingunn Ingólfsdóttir og Aron Freyr Sigurðsson munu sýna skemmtilegt samspil, en þessir ungu knapar sýna þá Hnokka frá Dýrfinnustöðum og Hlyn frá Haukatungu – Syðri 1.
Forsala hefur gengið ljómandi vel og stefnir í skemmtilegt kvöld á Króknum, en Skagafjörður skartar sínu fegursta í blíðunni þessa stundina. Sýningin hefst kl. 20 og fá gestir bókina Stóðhestar 2013 afhenta við innganginn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH