Bretland Anna Bretaprinsessa veitti verðlaun

  • 5. júlí 2023
  • Fréttir
Breska meistaramótið var haldið 24. júní

Félag eigenda íslenskra hesta í Bretlandi (IHSGB) hélt sumarmót sitt í Aston Le Walls Equestrian Centre 24. júní sl. Anna Bretaprinsessa sótti mótið í ár og veitti þar verðlaun, enda kunn hestkona og mikill aðdáandi íslenskra hesta.

Jóhanna Jónsdóttir, staðgengill sendiherra var þar einnig og kynntist þar þeim félögum Fífli og Jarli ásamt knöpum þeirra. Meðal keppenda voru bæði nýir knapar og aðrir reyndari sem freista þess að verða valin í breska landsliðið fyrir Heimsmeistaramót Íslenska hestsins sem fram fer í Hollandi í ágúst.

HÉR er hægt að sjá niðurstöður frá mótinu. Töltið vann Nadine Kunkel á Kjarki frá Efri-Rauðalæk með 6,44 í einkunn og slaktaumatöltið vann Jemimah Adams á Skírni frá Skipaskaga með 7,13 í einkunn en þau unnu einnig fjórganginn með 7,13 í einkunn. Freija Glansdorp vann fimmganginn á Ljóra frá Efri-Rauðalæk með 6,17 í einkunn.

 

May be an image of 10 people and horse May be an image of 3 people and horse

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link