Annað mót Sparisjóðs-liðakeppninnar – skráning
Smali og skeið er keppnisgreinar næstu Sparisjóðs-liðakeppninnar sem fram mun fara í Reiðhöll hestamannafélagsins Neista í Arnargerði laugardaginn 26. febrúar nk.
Í frétt á heimasíðu Neista kemur fram að skráning skuli berast á netfang Neista: [email protected], fyrir miðnætti þriðjudagskvöld 22. febrúar.
Fram þarf að koma nafn knapa, flokkur, hestur, litur, aldur og hvaða liði keppandinn er.
Skráningargjöld eru 1.500 kr í smala fyrir fullorðna en 500 fyrir unglinga. SKráningargjöld í skeið eru 1.000 kr. og þarf að greiða þau áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista, [email protected]
Keppt verður í unglingaflokki (fædd 1994 og seinna), 3. flokki, 2. flokki og 1. flokki.
Í 1. og 2. flokki fá 9 hestar að fara brautina aftur en 5 hestar fara brautina aftur í úrslitum í 3. flokki og unglingaflokki.
Tekið er fram að knapar verði að vera í sama flokki og í sama liði allt tímabilið.
Í skeiði má hver knapi keppa á eins mörgum hrossum og hann vill en getur aðeins fengið stig fyrir einn hest eins og í öðrum greinum. Þessi keppni gefur einungis stig í liðakeppninni en ekki í einstaklingskeppninni.
Aðgangseyrir á Sparisjóðs-liðakeppnina er 1.000 kr en frítt er fyrir 12 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH