Annað vetrarmót Smára

  • 9. mars 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Bæði eigandi hests og knapi þurfa að vera virkir félagsmenn í Smára

Annað Vetrarmót Smára verður haldið laugardaginn 15. Mars á svæði féagsins í Torfdal á Flúðum. Mótið hefst klukkan 14:00 og tekið verður við skráningum á staðnum frá kl 13:00

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Pollaflokk (9ára og yngri)
Barnaflokk (10-13 ára)
Unglingaflokk (14-17 ára)
Ungmennaflokk 18-21 árs)
I og II flokk fullorðinna
Unghrossaflokk (hross fædd 2009 og 2010)

Þetta er annað mótið af þrem í vetur og mótið mun fara fram með svipuðum hætti og síðast, unghrossaflokkur mun þó fara fram á hringvellinum eins og aðrir flokkar. 
Bæði eigandi hests og knapi þurfa að vera virkir félagsmenn í Smára svo þáttaka sé gild.

Skráningargjald er 1000kr fyrir hverja skráningu og greiðist á staðnum. Fríar skráningar í Barna og Pollaflokk. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link