Annáll 2016 – Vetur
Þegar sumrinu sleppti fóru hestamenn inn á við og ræddu stöðu hestamennskunnar og mótuðu framtíðastefnur. Þetta bar til tíðinda í haust:
- Landsþing hestamanna var haldið í október en var það rólegheitar Landsþing sem var góð þróun frá síðasta Landsþingi.
- Níu hryssur hlutu heiðursverðlaun en það var Röst frá Torfunesi sem hlaut Glettubikarinn
- Syðri-Gegnishólar/Ketilsstaðir var valið ræktunarbú ársins og keppnishestabú ársins.
- Ákveðið var að halda Íslandsmót fullorðna 2017 á Hellu og yngri flokka á Hólum.
- Rætt hefur verið að Fjórðungsmót Vesturland mun verða haldið á Hólum.
- Árni Björn Pálsson er knapi ársins, Hulda Gústafsdóttir íþróttaknapi ársins, Jakob S. Sigurðsson gæðingaknapi ársins, Dagmar Öder Einarsdóttir efnilegasti knapi ársins, Bjarni Bjarnason skeiðknapi ársins og Daníel Jónsson kynbótaknapi ársins
- Haldin var ráðstefnan íslensk hrossarækt í 100 ár þar sem farið var í stefnumótunar vinnu
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH