Annáll 2016 – Vor
Árið 2016 var að sönnu viðburðarríkt ár á sviði hestamennskunnar. Vorið var tími spennu og eftirvæntingar.
- Reiðhallarsýningar voru haldnar víðsvegar um landið.
- Markaðsátak íslenska hestsins fékk fullt fjármagn til næstu fjögurra ára. Hagsmunaðilar tóku höndum saman og ákvaðu á setja fullan kraft í að styrkja ímynd íslenska hestsins á alþjóðavettvangi
- Meistarar voru krýndir en Árni Björn Pálsson sigraði Meistaradeildina fyrir sunnan og Þórarinn Eymundsson sigraði Meistaradeild Norðurlands.
- Haldið var nýtt mót Meistari meistaranna en þar komu saman sigurvegarar úr mótaröðum landsins og kepptum um titilinn Meistari meistaranna.
- Röskun var á sýningarhaldi á íslenska hestinum í Danmörku vegna kverkeitlabólgu.
- Nýjung var bætt inn í WorldFeng en það eru upplýsingar um arfgerð hrossa í DMRT3 erfðavísinum en hann segir til um hvort hestar séu með svokallað “skeiðgen”
- Kynbótasýningar voru á sínum stað og var kynbótasýningin á Hellu og í Spretti þær fjölsóttustu. Svo kölluð “tískusýning” var haldin í Spretti en þar hlutu tvö hross yfir 9,0 fyrir hæfileika, Nípa frá Meðalfelli og Hrafn frá Efri-Rauðalæk
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH