Annar þáttur „Á mótsdegi“ kemur út í kvöld
Annað mótið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fór fram fimmtudaginn 6. febrúar. Eiðfaxi TV sýnir beint frá Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum ásamt því að gefa út annað efni tengt deildinni. Í kvöld kl 20:00 kemur út annar þáttur í þáttaröðinni Á MÓTSDEGI.
Þættirnir gefa áhorfendum innsýn í það hvernig það er að vera keppandi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum, hvað felst í undirbúningi og hvernig mótsdagurinn lítur út frá sjónarhóli keppendans.
Í þetta skiptið fylgir Ásta Björk Friðjónsdóttir, þáttarstjórnandi, eftir Hanne Smidesang en hún keppti á Tón frá Hjarðartúni fyrir lið Fets/Pulu. Hitti Ásta Hanne fyrsta á Byggðarhorni þar sem Hanne var að undirbúa sig fyrir kvöldið og fór síðan með henni í HorseDay höllina um kvöldið.
Ekki missa af þessum þætti og svo miklu meira til á www.eidfaxitv.is og tryggðu þér áskrift.
Næsta keppni í Meistaradeildinni er fimmgangur föstudaginn 28. febrúar í HorseDay höllinni.
Eiðfaxi TV er aðgengilegt á vefnum, í snjallsímum, Apple TV, Android TV, Google TV og Amazon Fire TV.
Ef einhverjar spurningar vakna eða þú þarft aðstoð vegna kaupa á áskrift þá getur þú sent okkur tölvupóst á [email protected]. Við hvetjum þá sem ætla að tryggja sér áskrift að gera það tímanlega svo hægt sé að aðstoða fólk ef eitthvað kemur upp.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári