Norðurlandamót Anne Frank og Vökull hljóta gull í fimmgangi

  • 9. ágúst 2026
  • Fréttir
Snorri Dal og Gimsteinn nældu sér í brons

Úrslitadagur Norðurlandamóts í hestaíþróttum er upp runninn sem að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.

Hestakostur í fimmgangi meistara var góður og mikil barátta um sigur í greininni. Að loknum öllum atriðum var það þó ljóst að Anne Frank Andresen og Vökull frá Leirubakka eru Norðurlandameistarar með 7,36 í einkunn, glæsilegur alhliðahestur Vökull. Í öðru sæti varð Sigurður Óli Kristinsson á Lótusi fra Søgard með 7,19 í einkunn og því silfurhafi. Snorri Dal og Gimsteinn frá Víðinesi hrepptu þriðja sætið og brons með einkunnina 7,17.

 

Sæti Keppandi Þjóðerni Heildareinkunn
1 Anne Frank Andresen / Vökull frá Leirubakka Danmörk 7,36
2 Sigurður Óli Kristinsson / Lótus fra Søgård Danmörk 7,19
3 Snorri Dal / Gimsteinn frá Víðinesi 1 Ísland 7,17
4 Rasmus Møller Jensen / Harpa frá Höskuldsstöðum Danmörk 7,12
5 Christina Lund / Gulltoppur frá Selfossi Noregur 7,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link