Annika hafði það
Annika Skrubbeltrang sigraði slakaumatöltið með 6,88 í einkunn en hún var á Goða frá Hvoli. Það voru miklar sviptingar í slaktaumatöltinu en tveir knapar stigu af baki þegar verið var að ríða á slaka taumnum og hlutu því 0,00 í einkunn fyrir þann þátt.
Magnús Skúlason var efstur fyrir slaka tauminn en Aspar var frekar ójafn á slaka taumnum en þeir enduðu í fjórða sæti með 6,29 í einkunn.
Efst inn í úrslitin var Frauke og Óskadís en eins og Eiðfaxi hafði greint frá áður afskráðu þau sig úr slaktaumatöltinu.
Niðurstöður úr A úrslitunum
1. Annika Skrubbeltrang – Goði frá Hvoli 6,88
2. Freija Puttkammer – Blettur von Ellenbach 6,75
3. Jolly Schrenk – Glaesir von der Igelsburg 6,45
4. Magnus Skulason – Aspar frá Fróni 6,29
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH