Áramótakveðja frá landsliðsþjálfara U21 árs landsliðsins

  • 31. desember 2022
  • Fréttir
Hvílíkt ár að baki!

Í mínu starfi sem þjálfari U21 árs landsliðsins hef ég orðið vitni að stórkostlegum sýningum framtíðarreiðmanna okkar á hestum sem geta skákað þeim allra bestu í greininni. Gróskan í unglinga og ungmenna starfinu er mikil og hestamannafélögin standa sig frábærlega í því að styðja við æskulýðsstarf sitt. Að mínu mati skal það vera hornsteinn hvers félags að styðja ötullega við æskulýðsstarfið því að þar er framtíð hestamennskunnar.
Á næsta ári er Heimsmeistaramótsárið sem við höfum öll beðið eftir. Þar ætlum við að sækja fram!

Við höfum efni á að spila bara sókn, enga vörn.

Gleðilegt nýtt ár og áfram Ísland. 

Hekla Katharína Kristinsdóttir
landsliðsþjálfari U-21

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link