Árbók Eiðfaxa – Leiðrétting
Árbók Eiðfaxa virðist hafa fallið vel í kramið hjá lesendum okkar og þökkum við kærlega fyrir þær góðu viðtökur sem bókin hefur fengið.
En engin er rós án þyrna segir máltækið og viljum við því leiðrétta tvær staðreyndavillur sem rötuðu í Árbókina:
- Stóðhesturinn Blæsir frá Hægindi sem var 10. hæsti fjögurra vetra stóðhestur landsins í fyrra er undan Konsert frá Hofi eins og tilgreint er í ættartölu en ekki undan Konsert frá Korpu eins og segir í texta.
- Móðir hryssunnar Hjarar frá Völlum sem var 8. hæsta sex vetra hryssa síðasta árs er Hind frá Hrafnsstöðum í Köldukinn í Þingeyjarsýslu en ekki í Svarfaðardal eins og kemur fram í texta.
Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH