Árið sem leið

  • 30. desember 2013
  • Fréttir
Annáll 2013

 

Vetur

Útgáfa Eiðfaxa og Hestablaðisins var sameinuð í eina sæng.  6 dagablöð og 6 tímarit koma út á ári ásamt aukablöðum.

Leiðbeiningarþjónusta búnaðarsambandanna og ráðgjafasvið Bændasamtaka Íslands voru einnig sameinuð í eitt fyrirtæki, Ráðgjafamiðstöð landbúnðarins ehf.

Guðmundur Björgvinsson sigrar Meistaradeild suðursins eftir gífurlega spennu í stigakeppninni og Ísólfur Líndal Þórisson sigrar Meistaradeild norðursins með Bjarna Jónasson fast á hæla sér.

Glæsilegar reiðhallarsýningar voru haldnar um land allt.

Vor

Hestadagar í Reykjavík voru haldnir í þriðja sinn. Um 150 hestar fetuðu niður Skólavörðustíg í glæsilegri skrúðreið. Borgarstjórinn Jón Gnarr keyrði um miðbæinn í hestakerru.

Stóðhestadagur Eiðfaxa haldin í annað skipti. Margir lögðu leið sína á Brávelli þar sem sýndir voru fagrir fákar.

Umdeilt atvik varð á kynbótasýningu á Selfossi þegar Magnús Lárusson lét nokkur orð falla í hátalarkerfi mótsins sem féllu í misjafnan jarðveg.  Hann baðst afsökunar á framferði sínu.

Sumar

Tvö fjórðungsmót fóru fram, á Vesturandi og Austurlandi.  Dræm mæting var fyrir austan og framúrskarandi kynbótahross komu fram fyrir vestan.

Um 13.000 manns sóttu Heimsmeistaramótið í Berlín. Misjafnar raddir voru um gæði mótsins en stjarna þess var án efa Jóhann Skúlason sem átti ógleymanlega sýningu á hestinum Hnokka frá Fellskoti. Konráð Valur Sveinsson hlaut tvö skeiðgull í ungmennaflokki.

Íslandsmótið var vel hepppnað þar sem Jakob Svavar Sigurðsson sýndi glæsileg tilþrif á hestunum Al frá Lundum II og Eld frá Köldukinn.

Haust

Áverkarskýrslur sýndu að lítið miðar í því að draga úr áverkum. Tveir knapar af þeim sem sýndu fleiri en 10 hross eru áverkalausir á árinu, Leó Geir Arnarsson og Olil Amble .

Nóta frá Ási hlýtur Glettubikarinn hún á 10 afkvæmi en fyrstu fimm þeirra hafa komið til dóms með glæsilegum árangri.

Jóhann Skúlason kjörinn knapi ársins á Uppskeruhátíð hestamanna. Efri-Rauðalækur hlaut verðlaun fyrir ræktun keppnishesta.

Auðsholtshjáleiga hlýtur titilinn ræktunarbú ársins í 2013 sinn á ráðstefnunni Hrossarækt.

Umdeildar tamningaraðferðir Iben Andersen ollu mikilli umræðu í heimi hestamnna.

Jarl frá Árbæjarhjáleigu og Narri frá Vestri-Leirárgörðum voru hæst dæmdu stóðhestar ársins báðir með 8.71 í aðaleinkunn.

Samkvæmt skráningum í worldfeng hafa alls 11.139 hross skipt um eigendur á árinu og 5.545 á Íslandi.

67 fyrstu verðlauna hross voru flutt út en útflutningur hrossa í ár er svipaður og síðustu tvö árin eða um 1100 hross.

 

Jarl frá Árbæjarhjáleigu

 

Jóhann Skúlason og Hnokki á heimsmeistaramótinu í Berlín

 

Auðsholtshjáleiga var valið Ræktunarbú ársins

 

Fjórðungsmót

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link