Arna sigrar með 9.10 í einkunn
Metamót Spretts hefur ætíð verið síðasta mót ársins undanfarin ár en þetta er með vinsælustu mótum ársins. Í a flokk voru skráð 72 hross og í b flokkinn 97 hross. Arna frá Skipaskaga var á heimavelli í b flokknum og sigraði hann örugglega með 9.10 í einkunn. Knapi á Örnu var Sigurður Sigurðarson. Önnur í b flokknum var Kvika frá Leirubakka og Jóhann K. Ragnarsson með 8.90 í einkunn og í þriðja sæti var Dáð frá Jaðri og Viðar Ingólfsson með 8.80 í einkunn.
A flokkinn sigraði Gróði frá Naustum og Steingrímur Sigurðsson með 8.81 í einkunn. Þar rétt á eftir var Atlas frá Lýsuhóli og Jóhann Ragnarsson með 8.72 í einkunn og þriðja var Ómsdóttirinn Sif frá Akurgerði og Fanney Valsdóttir með einkunnina 8.71
Hér er hægt að sjá allar einkunnir frá mótinu og sundurliðun frá dómurum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH