Arna Ýr er efst í fjórgangi ungmenna
Arna Ýr Guðnadóttir var að klára sýninguna sína í fjórgangi og skaust efst en hún hlaut einkunnina 6,80. Arnar Ýr fékk að ríða seinna í dag en hún var að þreyta inngöngupróf í lækninni í morgun þegar hin eiginlega forkeppni fór fram. Arnór Dan og Birgitta deila 2.-3. sætinu með einkunnina 6,77
Niðurstöður úr fjórgangnum:
1. Arna Ýr Guðnadóttir Þróttur frá Fróni 6,80
2.-3. Birgitta Bjarnadóttir Blika frá Hjallanesi 6,77
2.-3. Arnór Dan Kristinsson Þytur frá Oddgeirshólum 6,77
4. Gústaf Ásgeir Hinriksson Naskur frá Búlandi 6,73
5. Edda Hrund Hinriksdóttir Hængur frá Hæl 6,60
6. Edda Rún Guðmundsdóttir Gljúfri frá Bergi 6,37
Styttu haustið með EiðfaxaTV